Lénum sem eru í vefhýsingu hjá okkur skal vísa á eftirfarandi nafnaþjóna:
ns1.vefhysing.com
ns2.vefhysing.com
Um nafnaþjóna
Segja má að nafnaþjónar séu hinar rafrænu "símaskrár" internetsins en í stað símanúmera er haldið utan um svokallaðar IP tölur. Þegar þú slærð inn veffang (Internet address) í vafran þinn (browser) flettir tölvan þín sjálfkrafa upp í þeim nafnaþjónum sem hún hefur verið stillt á.
Þeir nafnaþjónar fletta upp í öðrum nafnaþjónum og svo koll af kolli
þar til heimanúmer (IP tala) viðkomandi veffangs hefur fundist. Þetta
gerist allt í bakgrunninum á miklum hraða og við verðum oftast nær
lítið vör við þetta rafræna puð. Þegar þú stofnar lén er aðal málið að
koma léninu á skrá í þessum rafrænu "símaskrám" Internetsins. Þegar
tölvan þín hefur fengið IP tölu tiltekins léns, geymir hún númerið hjá
sér í nokkrar klukkustundir svo hún þurfi ekki að spyrja um það í hvert
skipti. Ef lén er flutt yfir á aðra IP tölu getur tekið allt að 48 klst
fyrir breytinguna að "smitast" um allt Internetið því milljónir tölva
gera einmitt það sama og þín tölva og geyma IP tölur léna í tiltekinn
tíma frá því veffanginu var síðast flett upp.
|